Húsreglur

Þessar reglur gilda um þig og alla í þínum hópi á meðan tíminn stendur. Sá sem bókar er ábyrgur fyrir því að allir gestir þekki og fari eftir þeim.

Umgengni um búnað

Farðu vel með herma og búnað sem honum fylgir. Ef eitthvað bilar, láttu okkur vita strax. Við gætum rukkað þig fyrir tjón sem hlýst af óæskilegri eða rangri notkun.

Tími bókunar

Aðgangskóðinn þinn virkar 30 mínútum fyrir og eftir tímann þinn.

Aðgangskóði og gestir

Hámarksfjöldi á einn kóða eru fjórir einstaklingar nema með sérstöku leyfi. Greiðandi tímans ber ábyrgð á hollinu.

Skór

Vertu í hreinum inniskóm eða golfskóm með mjúkum tökkum. Harðir takkar og óhreinir skór skemma slagmotturnar.

Matur og drykkur

Haltu mat og drykkjum frá slagmottunum og búnaði. Notaðu setustofuna.

Hegðun

Berðu virðingu fyrir aðstöðunni og öðrum kylfingum. Óæskileg hegðun og skemmdarverk eru ekki leyfð.

Umgengni

Skildu við aðstöðuna eins og þú komst að henni. Gaktu frá boltum og T-um. Settu rusl í ruslaföturnar.

Börn og unglingar

Einstaklingur yngri en 16 ára er á ábyrgð forráðamanns.

Öryggismyndavélar

Öryggismyndavélar taka upp í aðstöðunni allan sólarhringinn. Við notum upptökurnar vegna öryggis og til að vernda búnaðinn.